Customize Consent Preferences

We use cookies to help you navigate efficiently and perform certain functions. You will find detailed information about all cookies under each consent category below.

The cookies that are categorized as "Necessary" are stored on your browser as they are essential for enabling the basic functionalities of the site. ... 

Always Active

Necessary cookies are required to enable the basic features of this site, such as providing secure log-in or adjusting your consent preferences. These cookies do not store any personally identifiable data.

No cookies to display.

Functional cookies help perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collecting feedback, and other third-party features.

No cookies to display.

Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics such as the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.

No cookies to display.

Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.

No cookies to display.

Advertisement cookies are used to provide visitors with customized advertisements based on the pages you visited previously and to analyze the effectiveness of the ad campaigns.

No cookies to display.

Verkefni 2011

19. júní kl. 16:00

Dagur hinna villtu blóma á Skarðsströnd
Efnt til göngu og plöntugreiningar á Degi hinna villtu blóma. Gengið frá Ytri Fagradal á Skarðsströnd, niður túnin að fjörunni og síðan eftir ströndinni um land Heinabergs að Nýpurá, upp með ánni og að Nýp. Leiðsögn Halla Steinólfsdóttir, Ytri Fagradal og Þóra Sigurðardóttir

—————————

3. júlí kl. 16:00

Ævintýri við Breiðafjörð
Aðalheiður Guðmundsdóttir fjallar um ævintýri sem sögð hafa verið við Breiðafjörð og í Dölum – en í erindinu fjallar hún ekki síst um fólkið sem sagði þau. Aðalheiður skoðar sögur og sagnafólk sem bjó í Dalasýslu, einkum um það leyti sem Jón Árnason stóð að þjóðsagnasöfnun sinni á 19. öld, en einnig fyrir og eftir þann tíma. Spurt verður hvort Dalamenn skera sig frá sem heimildarmenn ævintýra og ef svo er, þá hvers vegna.
Í upphafi erindisins ræðir Aðalheiður jafnframt almenn einkenni ævintýra, en lítur einkum til þess á hvern hátt íslensk ævintýri skera sig frá ævintýrum annarra Evrópuþjóða. Þar sem ævintýri tengjast alltaf „þjóðarsálinni“ á hverjum tíma, svo sem með því að endurspegla vonir og drauma fólksins, verður litið til þess samfélags sem mótaði þau, og þá sér í lagi til hlutverks sagnaþulanna. Í stuttu máli verður sagt frá sagnaþulum og starfi þeirra, og hvernig fræðimenn hafa leitast við að tengja ævi þeirra og lífshlaup þeim sögum sem þeir tileinka sér og miðla til annarra.

Aðalheiður Guðmundsdóttir er íslenskufræðingur og aðjunkt í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Aðalheiður er jafnframt dóttir síðustu ábúenda á Nýp á Skarðsströnd, en jörðin lagðist í eyði árið 1972. https://uni.hi.is/adalh/

—————–

28.-31.júlí

Myndhöggvarar að Nýp; brennsla í leirbrennsluofninum Nýpu
Verkefnið fjallar um leir, jarðefni og eld sem kveikju nýrra verka. Undirbúningsvinna fer fram á verkstæðum myndlistamannanna og á verkstæði Myndhöggvarfélagsins í maí/júní 2011, en brennsla verka verður að Nýp á Skarðsströnd dagana 28.-31. júní 2011. Með verkefninu gefst kostur á að nýta eldbrennslu fyrir verk þátttakenda í keramikofni sem hannaður var til að brenna keramik við gas og við. Ofninn var teiknaður af Andres Allik ofnmeistara frá Eistlandi og reistur að Nýp árið 2006. Í smiðjunni verður m.a. mögulegt að nýta jarðefni af svæðinu til glerungagerðar. Bjarnheiður Jóhannsó́ttir sérfræðingur í glerungagerð og eldbrennslu verður til ráðgjafar í smiðjunni. Smiðjan verður opin almenningi til kynningar á verkefninu sunnudaginn 31. júlí og í lok brennslu verður rými hlöðunnar að Nýp nýtt til kynningar á afrakstri vinnunnar.

http://nyp.is/verkefni07/tilraunasm07.html

————————-

18. ágúst kl. 20:30

Stofutónleikar hljómsveitarinnar Moses Hightower

——————–

25.-26. ágúst
Nemendur í fyrsta áfanga í MÓTUN / keramikhönnun frá Myndlistaskólanum í Reykjavík heimsækja Nýp. Nemendum kynnt saga, náttúra og umhverfi Nýpur, leirinn í jarðlögum svæðisins og nýting hans. Jafnframt fá nemendur innsýn í leirbrennslu í eldofninum og skoða dæmi um árangur brennslu.

www.myndlistaskolinn.is

——————-

12.-16. september

Keramik brennsla: Nemendur á öðru ári í MÓTUN / keramikhönnun frá Myndlistaskólanum í Reykjavík vinna með glerunga og brennslu í keramikofninum að Nýp.
Vinnustofa og brennsla í leirofninum NÝPU fyrir nemendur Myndlistaskólans í Reykjavík, á 2 ári í MÓTUN. Umsjón Ólöf Erla Bjarnadóttir, brennslustjórn Bjarnheiður Jóhannsdóttir.

———————

23.-25.september

Keramik brennsla: Verkstæði myndlistamanna og hönnuða.Unnið með Dalaleir og íslensk jarðefni sem glerunga.

Asa Shimada, Hafdís Helgadóttir, Ólöf Erla Bjarnadóttir,  Sólveig Aðalsteinsdóttir,Þóra SIgurðardóttir. Brennslusjóri Þóra Sigurðardóttir