Tilraunasmiðja

10.-15. júlí 2006

Ofnbygging á Nýp og tilraunasmiðja með dalaleir og íslensk jarðefni

Hönnun og stjórn ofnbyggingar:
Andres Allik Eistland

Verkefnisstjórn:
Þóra Sigurðardóttir

Aðstoðarmenn:
Emil Ísleifur Sumarliðason
Teitur Emil Vahapassi
Sumarliði Ragnar Ísleifsson
Halla Steinólfsdóttir

Styrktaraðilar ofnbyggingar: Menningarráð Vesturlands, KM þjónustan Búðardal, Jarðefnavinnslan Þorlákshöfn, Álfaborg Reykjavík, ET flutningaþjónusta Reykjavík og Saurbæjarhreppur Dalasýslu, bændur í Ytri Fagradal, Skarðströnd.

Keramik ofnbygging
Í júlí 2006 efnir Penna sf. að Nýp, Skarðströnd, í samvinnu við Myndlistaskólann í Reykjavík og Evrópuverkefnið Knowhow, til námskeiðs í byggingu keramik ofna –og tilraunasmiðju með Dalaleir og íslensk jarðefni.

Námskeiðið fer fram á Nýp, en þáttakendur eru 8 innlendir og erlendir fagmenn á sviði keramik, myndlistar og hönnunar. Sérfræðingur í byggingu keramikofna, Andres Allik frá Eistlandi hefur verið fenginn til að leiðbeina og stjórna byggingunni. Þáttakendur skiptast um að taka þátt í byggingarvinnunni, en ofninn er hlaðinn úr hitaþolnum múrsteinum.

Þess á milli gera þátttakendur tilraunir með íslenska leirinn. Bjarnheiður Jóhannsdóttir, sem hefur gert mikilsverðar athuganir á eiginleikum og samsetningu íslenskra jarðefna og leir, miðlar af þekkingu sinni á námskeiðinu auk þess sem hún verður með fyrirlestur á Nýp um rannsóknir sínar föstudaginn 14. júlí kl.17:00.

Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur mun jafnframt miðla af þekkingu sinni um jarðsögu Íslands á námskeiðinu.Markmið
Markmiðið er að skapa aðstöðu til viðar-og gasbrennslu á leir með því að byggja brennsluofn á því landssvæði Íslands þar sem leirlög eru mest í jörðu. Vonast er til að það stuðli að áhuga á auknum tilraunum með leir og jarðefnum til notkunar í hönnun, keramik og myndlist á Íslandi. Myndlistaskólinn og Knowhow.

Myndlistaskólinn í Reykjavík hefur nýverið kynnt menntamálaráðuneyti áform stjórnar skólans um skipulagningu náms á sviði keramik, textíl og teikningar. Í þeim áformum er m.a. lögð áhersla á tengingu við náttúru, menningu og nærtæk hráefni, auk tengingar við listaskóla í Evrópu.
Myndlistaskólinn stýrir samstarfsverkefni 6 skóla í Evróp, Knowhow, sem er stutt af Leonardo da Vinci áætlun Evrópusambandsins (sjá knowhow.is).

Verkefnið leitast við að vekja athygli á mikilvægi efnis-og verklegra námsþátta og á verkstæðiskennslu sem mikilvægum valkosti í menntakerfinu. Þáttökuskólarnir efna til ýmissa verkefna í nafni Knowhow verkefnisins og er ofnbygginámskeiðið og tilraunasmiðjan eitt slíkt.

Þátttakendur í ofnbyggingarnámskeiði og tilraunasmiðju:
Anne Thorseth, myndlistamaður Danmörk
Asa Shimada, nemandi, Japan
Bjarnheiður Jóhannsdóttir keramikhönnuður, Ísland
Egill Kalevi Karlsson iðnhönnuður, Ísland
Greg Barrett, handverksmaður, Írlandi
Ingrid Allik keramikhönnuður, Eistland
Katri Tiirikainen, hönnunarnemandi, Finnland