Málþing

29.júlí 2006

Fyrirlestrar að Nýp, svæðistengd saga: Ævisögur við Breiðafjörð og á Skarðsströnd

Árni Björnsson, þjóðháttarfræðingur og Ólafur Hannibalsson, rithöfundur


Efni að þessu sinni er helgað frásögnum/ævisögum sem tengjast Breiðafirði og Skarðsströnd.
Um er að ræða Skarðstrendingasögu Gísla
Konráðssonar (1787-1877) sem er enn óútgefin, rit Friðriks Eggerz (1802–1894), Úr fylgsnum fyrri aldar I-II (Rv. 1950–1952) og ævisögu Magnúsar Blöndal Jónssonar (1861–1956), Endurminningar I-II (Rv. 1980). Friðrik Eggerz var ættaður af Skarðsströnd og var prestur þar um árabil.

Magnús Blöndal var á barns- og unglingsárum að Nýp á Skarðsströnd, en foreldrar hans bjuggu þar búi.

Dr. Árni Björnsson þjóðháttarfræðingur og Ólafur Hannibalsson rithöfundur munu m.a. ræða þær hugmyndir sem birtast í þessum verkum og þær myndir sem dregnar eru upp af mönnum og málefnum, fjalla um bakgrunn þeirra og velta upp tengingum þeirra við síðari tíma

Að erindum loknum verða umræður og kaffiveitingar.

Fyrirlestrarnir eru í samvinnu Penna sf. og Reykjavíkurakademíunnar.

Verkefnisstjóri Sumarliði R. Ísleifsson.