Brennsla 27.-30.09.2026
Brennsla 27.-30.09.2026
Brennsla 27.-30.10.2026
Brennsla 27.-30.10.2026
5.-8.10. 2026
LHÍ Arkítektadeild. Vinnudvöl að Nýp
Trio Sölvi Kolbeins: 9.07. 2026 Tónleikar / Concert at Nýp Skarðsströnd.
Saxophone Sölvi Kolbeinsson, Percussions Magnús Tryggvason Eliassen, Guitar Hilmar Jensson play material from the new album Collage, released by Reykjavík Record Shop in November 2025.
Málþing að Nýp 20. júní 2026
Fyrirlesarar:
Erla Hulda Halldórsdóttir: Átta sinnum í kringum jörðina. Sjóferðir Jóns Vídalíns stýrimanns 1774–1800
Karen Oslund: At Sea with Languages: Interpreting the Travels of Árni Magnússon of Geitastekkur.
Kristín Ingvarsdóttir: Steingrímur Matthíasson: Skipslæknir í Austurlöndum 1903-1904.
Sumarliði R. Ísleifsson stýrir málþingi
Erindi um Magnús Ketilsson (1732-1803) 24. ágúst kl. 14:00 að Nýp á Skarðsströnd
Fyrirlesarar Hrafnkell Lárusson sagnfræðingur
og Sigurbjörn Einarsson jarðvegsfræðingur.
Fjallað var um Magnús Ketilsson (1732-1803) í Búðardal á Skarðsströnd, sýslumaður Dalasýslu, frumkvöðull í ræktun, ein helsti forsvarsmaður Hrappseyjarprentsmiðju, rithöfundur og upplýsingarmaður.
Í erindi sínu: “Upplýsing gegn hjátrú. Um viðhorf og skrif Magnúsar Ketilssonar sýslumanns í Búðardal” ræddi Hrafnkell Lárusson um Magnús sem frumkvöðul á 18. öld, merkisbera róttækra hugarfarsbreytinga og úrbóta í verklegum og andlegum efnum. Hrafnkell ræddi hvernig þessi viðhorf birtust í ritum Magnúsar sem flest komu út á vegum Hrappseyjarprentsmiðju, fyrstu veraldlegu prentsmiðju landsins.
Í erindi sínu: “Ræktunarmaðurinn Magnús Ketilsson í Búðardal á Skarðsströnd” ræddi Sigurbjörn Einarsson um mótun Magnúsar Ketilssonar sem ræktunarmanns, helstu þætti í ræktunarstarfi hans og hvernig hann varð áhrifavaldur í nýsköpun og ræktun.
Að loknu málþingi léttar veitingar en síðan farið í heimsókn í Búðardal á Skarðsströnd; Benedikt Eyjólfsson og Margrét Beta Gunnarsdóttir tóku á móti gestum og greindu frá staðnum.
„Eigi skal gráta Björn bónda“
Ólöf ríka frá Skarði
Málstofustjórnandi Sumarliði R. Ísleifsson
Erindi fluttu Sigríður Hagalín Björnsdóttir rithöfundur
Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur
Guðjón Th. Erlendsson arkítekt