On the Threshold of Decisions and Slips / Ákvarðanir, óvissa
On the Threshold of Decisions and Slips / Ákvarðanir, óvissa
Claudia Hausfeld
Í miðju sjónarinnar er blindur blettur, ekki galli heldur ástand. Við sjáum ekki aðeins það sem birtist okkur, heldur mótum skilning okkar einnig út frá því sem vantar, því sem sleppur undan og því sem er óvíst. Í þessari sýningu rannsakar Claudia Hausfeld þetta svið með silfurgelatín-ljósmyndum, ljósætingum og leirverkum sem fjalla um skynjun, efnisleika og breytilegt samband myndar og staðar.
Ljósmyndaverkin verða til í ferlum þar sem stjórnin er aldrei algjör. Þau mótast í samspili ljóss, efnafræði, tíma og handbragðs. Frekar en að skrá tiltekinn stað kanna þau hvernig staðir verða til, færast til og birtast á ný. Myndirnar eru unnar innan heimilis- og sýningarrýmis Nýps og snúa aftur til uppruna síns með spor af sögu staðarins, án þess þó að festa merkingu hans endanlega.
Ljósætingarnar nálgast svipaðar spurningar með endurtekningu og líkamlegri vinnu. Múrsteinar og byggingarform verða til í lögum af lit og prentun þar sem hver umferð færist örlítið úr skorðum. Það sem virðist traust tekur að hreyfast og umbreytast og sýnir þannig byggingu sem ferli fremur en fullmótað ástand.
Í gegnum sýninguna beinist athyglin að óvissu og breytingum: hvernig myndir halda sér saman, hvernig kerfi eru ávallt tímabundin og hvernig merking verður til í frávikum fremur en endanlegri niðurstöðu. Veggir, ljósmyndir, innirými og hlutir virðast vera í fleiri en einu ástandi í senn og ná aldrei að festa sig í einni mynd.
Fín sprunga liggur í gegnum sýninguna, ekki sem rof heldur tenging. Hún opnar leiðir milli myndar og hlutar, nærveru og fjarveru, þess innra og ytra. Líkt og blindi bletturinn sem mótar sjónina verða þessi bil að virkum rýmum þar sem skynjunin tekur stöðugum breytingum.
Becky Forsythe, sýningarstjóri
————
Claudia Hausfeld (f. 1980 í Austur Berlín, GDR) stundaði nám í ljósmyndun í Zürich í Sviss og myndlist við Listaháskóla Íslands. Í verkum sínum kannar hún samband mynda og rýmis, hennar helstu miðlar eru ljósmyndun og skúlptúr. Hún grípur í ýmsan efnivið til að skapa umhverfi sem eru ótraust og draga hugmyndir um raunveruleikann í efa af nærgætni.
Nýp Sýningarrými er aðili að Samtökum um listamannarekin myndlistarými. Sýningin er styrkt af Uppbyggingarsjóði Vesturlands, Myndlistarsjóði og Starfslaunasjóði myndlistar.
Fyrir frekari upplýsingar eða viðtalsbeiðnir, vinsamlega hafið samband við: Claudia Hausfeld: claudia.hausfeld@gmail.com, Becky Forsythe: s. 865 6978 eða nyp@nyp.is
Ljósmyndun: Sisters Lumière/@sisters_lumiere
—————————
At the centre of vision lies a blind spot, not a flaw but a condition. We see through absences as much as through what is present, assembling meaning from fragments, gaps and uncertainties. In On the Threshold of Decisions and Slips, Claudia Hausfeld explores this through gelatin silver photographs, photo etchings and clay sculptures that examine perception, materiality and the shifting relationship between image and place.
Created through processes where control is never absolute, the photographic works are negotiations between light, chemistry, time and gesture. Rather than documenting a specific location, they explore how a place can be constructed, displaced and revisited. Made within the domestic and exhibition space of Nýp, the images return to their site of origin carrying traces of its histories while resisting fixed interpretation.
The photo etchings open similar questions through repetition and physical labour. Built through successive layers of colour and printmaking, images of bricks and architectural forms gradually slip out of alignment. Structures that initially appear stable begin to shift, revealing construction as an ongoing process rather than a finished state.
Across the exhibition, Claudia attends to moments of uncertainty: how images hold together, how systems remain provisional, and how meaning emerges through slippage rather than resolution. Walls, photographs, interiors and objects appear suspended between multiple states at once, never fully settling into a single form.
A subtle crack runs through the exhibition, not as a rupture but as a connection. It opens passages between image and object, presence and absence, interior and exterior. Like the blind spot that shapes vision itself, these gaps become productive spaces through which perception is continually reoriented.
Becky Forsythe
————
Claudia Hausfeld (b. 1980 in East Berlin, GDR) studied photography in Zürich, Switzerland and fine arts at the Icelandic University of the Arts LHÍ. Her practice oscillates between photography and sculpture and interrogates the relationship between images and space. She employs a variety of materials to propose precarious environments that gently erode notions of the real. Claudia lives and works in Reykjavík and Berlin.
Nýp Project Space is a member of the Artist Run Spaces Association. The project is made possible with the support of West Iceland Culture Council, State Art Grants as well as support from The Center of Icelandic Art. The exhibition is open by appointment, please contact nyp@nyp.is or tel. 00354 8961930 – and for further information: Claudia Hausfeld claudia.hausfeld@gmail.com, Curator Becky Forsythe s. 865 6978.
Ljósmyndun: Sisters Lumière/@sisters_lumiere
Sýningin er gerð möguleg með stuðningi Myndlistarsjóðs, Starfslaunasjóðs myndlistarmanna og Frumkvæðissjóðs DalaAuðs.


