Hetjusögur; ljósmæður í ljóði og sögu
Stories of Heroes; Midwifes in Poems and Tales
Laugardag 1. ágúst kl. 15:00
Á árunum 1962–1964 komu út bækurnar Íslenzkar ljósmæður I–III, þar sem prentaðir voru æviþættir og endurminningar 100 íslenskra ljósmæðra sem flestar voru að störfum á síðari hluta 19. aldar og fram eftir 20. öld. Kristín Svava Tómasdóttir ljóðskáld og sagnfræðingur hefur ort kvennasögulegan ljóðabálk upp úr verkinu, sem væntanlegur er á bók undir titlinum Hetjusögur. Hún mun lesa upp úr ljóðunum og ræða ólíkar aðferðir ljóðlistar og sagnfræði og stöðu kvenna í þjóðarsögunni, auk þess að rifja upp afrek nokkurra ljósmæðra úr nágrenninu.
Þökkum Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og Markaðsstofu Vesturlands veittan stuðning.