Dalir og hólar

[thethe-image-slider name=”dh2009″]

9. – 30. ágúst 2009

Dalir og Hólar – handverk

Myndlistarsýning í Dölum, á Ströndum, á Reykhólum og í Gilsfirði þar sem athyglinni var beint að handverkshefðum. Skólahús gamla landbúnaðarskólans í Ólafsdal, starfsemi hans og umhverfi er útgangspunktur sýningarinnar. Líkt og sýningin Dalir og Hólar 2008 leiddi sýningin gesti um svæðið. Dalir – Reykhólahreppur – Strandir, með því að staðsetja sýninguna á 4 stöðum og prentað var leiðakort sem jafnframt var sýningarskrá.

Sýningarstjórn var í höndum Hildar Bjarnadóttur og Þóru Sigurðardóttur en sýningin var skipulögð og unnin í samvinnu við Ólafsdalsfélagið, bændur, leikmenn og menningarstofnanir á Vestfjörðum og Vesturlandi. Aðilar að sýningunni voru Sauðfjársetrið á Ströndum,  Minjasafn Dalamanna að Laugum, Sælingsdal,  Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum en jafnframt voru sett upp myndlistarverk á öllum þessum stöðum. Miðpunktur sýningarinnar var  í gamla skólahúsinu í Ólafsdal en nýhlaðinn veggur við heimtröðina að Ólafsdal var hluti sýningarinnar.

Sýningin var formlega opnuð í Ólafsdal að viðstöddu fjölmenni á Ólafsdalsdeginum 9. ágúst 2009 og stóð hún allan ágústmánuð.

Á sýningunni voru verk eftir:
Ásdísi Thoroddsen
Hafstein Aðalsteinsson og Aðalstein Valdimarsson
Guðjón Kristinsson og Rúnar Karlsson
Guðjón Ketilsson
Hannes Lárusson
Hildi Bjarnadóttur
Hlyn Helgason
Sólveigu Aðalsteinsdóttur
Unnar Örn
Þóru Sigurðardóttur
Auk þess vann hópur alþjóðlegra sjálfboðaliða frá Veraldarvinum við
endurgerð hleðslunnar við heimreiðina í Ólafsdal. Eggert Björnsson
birtist á opnunardegi sýningarinnar í Ólafsdal og sama dag í
Bátasafninu, íklæddur handsaumuðum sjóklæðum úr lambsskinnum að hætti
sjómanna liðinna alda, sem hann sjálfur hefur útbúið í samræmi við
varðveittar heimildir.  Fjöldi heimamanna kom að því að gera húsnæðið
í Ólafsdal þannig úr garði að hægt yrði að setja upp sýninguna og opna
húsið gestum.

Menningarráð Vesturlands og Menningarráð Vestfjarða styrktu verkefnið.

http://www.dalir.is/starfsemi/byggdasafn/
http://www.reykholar.is/stjornsysla/stofnanir/Batasafn_Breidafjardar
http://www.strandir.is/saudfjarsetur/
http://batasmidi.is

Ólafsdalur


www.artinfo.is/olafsdalur/
www.nyp.is