Stefán frá Hvítadal

28. júlí 2007

Málþing að Nýp

Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur, Andrea Harðardóttir sagnfræðingur og Ingunn Ásdísardóttir leikstjóri.
Laugardaginn 28. júlí verður boðið upp á dagskrá um skáldið Stefán frá Hvítadal að Nýp á Skarðsströnd í Dalasýslu, en á þessu ári eru 120 ár liðin frá fæðingu hans. Dagskráin hefst kl. 15:00. Tveir fyrirlesarar munu fjalla um skáldskap Stefáns frá Hvítadal og lífsferil. Það eru þær Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur og ritstjóri sem einkum mun fjalla um skáldskap Stefáns en Andrea Harðardóttir sagnfræðingur og kennari mun ræða um lífshlaup hans. Þá mun Ingunn Ásdísardóttir þjóðfræðingur og leikstjóri lesa nokkur ljóða Stefáns. Dagskráin mun standa í eina og hálfa til tvær klukkustundir og eru allir velkomnir. Að dagskrá lokinni verða léttar veitingar.

ReykjavíkurAkademían og Penna sf standa að dagskránni. Verkefnið er stutt af Menningarsjóði Vesturlands og Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur.

————————–

Laugardaginn 22. September

kl. 17:00 laugardaginn 22. september 

120 ár frá fæðingu Stefáns frá Hvítadal, Tónlistardagskrá í Staðarhólskirkju í Saurbæ, Dalabyggð
Dagskrá:

Séra Skírnir Garðarsson, sóknarprestur í Reykhólaprestakalli býður gesti velkomna í kirkjuna.
Kynnt framlag nemenda Grunnskólans í Tjarnarlundi.

Haustið nálgast : Hlynur Snær Sæmundsson les ljóð Stefáns,.
Erla: Árdís Lilja, Lydía Nína, Margrét, Laufey Fríða, Steinþór Logi, Kristín, Rúnar, Stefán Rafn, Hlynur Snær og Kristinn Helgi syngja lag Péturs Sigurðssonar ( d. 1931). Undirleikur: Jóhann Hermannsson, Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir og Tryggvi Hermannsson leika undir stjórn Guðmundar Bæringssonar.
Vorsól: Kristinn Helgi Bogason les ljóð Stefáns

Þorleifur Hauksson segir frá Stefáni frá Hvítadal, les ljóð skáldsins og kynnir sönghóp og stjórnanda.
Sungin verða :

4. Erla við lag Sigvalda Kaldalóns ( 1881 – 1946)

Drottningin í Sólheimum, Atli Heimir Sveinsson hefur unnið nýja útsetningu við lag sitt í tilefni að 120 ára afmæli Stefáns. Undirleikur Sigrún Steingrímsdóttir,

Kirkjan ómar öll, lag Sigvalda Kaldalóns

Vorsól við lag Sigfúsar Halldórssonar (1920 – 1996).

Sönghópinn skipa:

Hermundur Guðsteinsson
Jón Ólafsson
Ragnheiður Margrét Guðmundsdóttir
Svanhvít Ingólfsdóttir
Steingrímur Teague
Valgerður Ólafsdóttir
Þorleifur Hauksson

Stjórnandi : Sigrún Steingrímsdóttir Einsöngur: Hlín Pétursdóttir

Eftir dagskrána er gestum boðið upp á kaffiveitingar í Tjarnarlundi
þar sem jafnframt er sýning á verkefnum nemenda Grunnskólans í Tjarnarlundi
sem unnin voru út frá ljóðum Stefáns frá Hvítadal,

Verkefnið er stutt af Menningarsjóði Vesturlands og Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur