Sýningarverkefnið Dalir og hólar

Fyrstu tvær helgar í ágúst 2008 settu 8 myndlistarmenn upp jafnmargar sýningar í Dölum og í Reykhólasveit. Verkefnið var hugsað sem safn 8 sýninga sem allar eiga sér stað á sama tíma, þar sem unnið var út frá staðháttum og sögu svæðisins. Hver þátttakandi valdi sér sýningarstað/svæði til að vinna með og voru sýningarstaðirnir af ýmsum toga; hús, húsarústir, hús í byggð, eyðibýli eða tiltekin svæði í sveitinni.

Sýningarnar voru opnar tvær helgar í ágúst og það landssvæði sem þær virkjuðu miðuðust við að hægt væri að fara á milli sýninganna á einum degi. Kveikjan að hugmyndinni var löngun til þess að dveljast og vinna að myndlist úti á landi, sækja út fyrir hefðbundna sýningarsali, kynnast þessu landssvæði, sækja hugmyndir og vinna út frá náttúru og menningu svæðisins. En ekki síst að taka þátt í mannlífi svæðisins, efna til samstarfs og samtals við heimamenn og að bjóða sýningargestum upp á ferðalag um þetta merka svæði.

Magnús Pálsson myndlistamaður setti upp verkið JÓN í brekkunni fyrir ofan bæjarhúsið að Nýp og tileinkaði verkið minningu langafa sins séra Jóns Bjarnasonar. Séra Jón bjó ásamt fjölskyldu sinni að Nýp á 19. öld og skrifaði sonur hans Magnús Blöndal Jónsson merkar æfiminningar sínar í 3. Bindum, en bernsku sína lifði Magnús að Nýp á Skarðsströnd.
Við Breiðafjörð og í Dölum hafa margir listamenn sögunnar og samtíðarinnar slitið bernskuskóm eða unnið lífsverk sitt. Sýningin var styrkt af Menningarráði Vesturlands og Menningarráði Vestfjarða. Sýningarstjóri var Sólveig Aðalsteinsdóttir.